top of page

Verkefni sem við höfum unnið...

Einbýlishús í Villingaholti

Við erum að byggja þetta skemtilega hús sem er hannað af TOGT ehf teikni- og tækniþjónusta í Villingaholti og er það langt komið að utan á þessu stigi og klætt að innan með gifsi.

VIÐBYGGING Í MOSFELLSBÆ

Húsið er 127 m2 og er burðarvirki timburgrind . Húsið er klætt að utan með lítilli álbáruklæðningu ásamt því þá er þakkantur allur klæddur með áli þannig að húsið er mjög viðhaldslítið. Við sáum um alla vinnu allt frá hönnun til þess að efhenda ánægðum eiganda lyklanna.

GISTIHÚS Í MOSFELLSDAL

Húsið er 40m2 og er úr gegnheilu timbri og einangrað að utan. Húsið er til útleigu á AirBNB og flokkast sem lítið hús á lóð samkvæmt byggingareglugerð. Í þeim tilvikum þá þarf eingöngu að senda inn aðalteikningar til byggingaryfirvalda.

GISTIHÚS Á BRÚN Á SYÐRI REYKJUM 

Við höfum afhent eigendum nýtt gisti hús að syðri Reykjum þar sem að eigendur þess hafa þegar tekið það í notkunn. Húsið er úr gegnheilu límtré og einangrað að utan. 

Við sáum um alla verkþætti eða allt frá hönnun að fullbúnu húsi.

 

SUMARHÚS Í REYKHOLTI

ÖNNUR VERKEFNI SEM UNNIN HAFA VERIÐ AF OKKUR

RVK Studios Gufunesi
wp5617c7b0_06.png

Okkar hlutverk var byggingastjórn og framkvæmdir á fyrsta áfanga sem var kvikmyndasalur ásamt búningsklefum, kaffiðastöðu og klósettaðstöðu.

 

Húsið er 3500 m2 að stærð, Togt ehf Teikni- og tækniþjónusta sá um útfærslur á einangrunn, hljóðeinangrunn og gólfhitakerfi ásamt almennri byggingastjórn.

 

Eigandi er RVK studios

 

Desjamýri 3 - Atvinnuhúsnæði
wp5244c8e3_06.png

Hönnun, byggingastjórn og reisning á þessu mannvirki.

 

Húsið er 2200 m2 að stærð og er burðarvirki þess svo kallað Z struktúr sem er svo klætt með yleiningum.

 

Framkvæmdir áttu sér stað 2016 - 2018

bottom of page